Aðalfundir deilda i dag - skráning í rútu

Aðalfundir deilda félagsins árið 2025 fara fram á Hótel KEA / Múlabergi á Akureyri í dag, þriðjudaginn 4. febrúar, kl. 17:00.

Mætið á fund, verið virk í deildinni ykkar!

Veitingar í boði.

ATHUGIÐ! Fundir hefjast fyrr en síðustu ár.

Félagið skiptist í þrjár starfsgreinadeildir

Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem flutt verður erindi og boðið upp á veitingar. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund. 

  • Í ár verður kosið til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig. 
  • Í Iðnaðar- og tækjadeild þarf einnig að kjósa einn meðstjórnanda til eins árs.

Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

Skráning í rútu, sem fer frá Fjallabyggð fer fram í síma 460 3600. Skráningu lýkur kl. 12 í dag.

  • Siglufjörður, rúta kl. 15:45, frá skrifstofu félagsins.          
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 16:00, frá Tjarnarborg.
  • Dalvík, rúta kl. 16:15, frá skrifstofu félagsins.
  • Sameinast verður í bíla frá Grenivík og Hrísey.
    • Heyrið í svæðisfulltrúa eða varasvæðisfulltrúa.

Mætið á fund, verið virk í deildinni ykkar!