Eining-Iðja vill benda trúnaðarmönnum félagsins á námskeið í SÍMEY sem félagið er að bjóða þeim upp á í maí. Við hvetjum alla trúnaðarmenn Einingar-Iðju til að skrá sig og mæta. Hægt er að velja um tvö námskeið (tvær dagsetningar og mismunandi tímasetningar) og stendur hvort námskeið yfir í tvö skipti, 2x3 tímar. Gagnlegt námskeið fyrir alla trúnaðarmenn.
Aðeins um námskeiðið
Samkeppnin um athygli hefur sjaldan verið jafn hörð og nú. Hvaða leiðir eru færar til þess að koma þér og þínu félagi að í nútímasamfélagi? Á námskeiðinu verður farið yfir nokkur mikilvægt atriði sem geta komið að gagni við að kynna þig og félagið þitt. Hvernig náið þið eyrum yfirmanna? Hvernig undirbýr maður sig fyrir aðalfundinn og hvernig á að svara fjölmiðlafólkinu? Hvað er fréttnæmt hjá félaginu? Skiptir sýnileiki máli? Ávinningurinn er aukið sjálfstraust og aukin virðing fyrir starfi trúnaðarmanna.
Leiðbeinandi: Dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur
Skráning og nánari upplýsingar um námskeið
Námskeiðið er alls 6 tímar og er kennt í tveimur hlutum.
Fyrri dagur:
Seinni dagur: