2. júlí 2024 - dagsferð fyrir eldri félagsmenn

Hin árlega eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin á morgun, þriðjudaginn 2. júlí.

Rúmlega 60 félagsmenn skráðu sig í ferðina í ár. Lagt verður af stað kl. 9:00 frá Alþýðuhúsinu á Akureyri. Vert er að benda félagsmönnum sem eru að fara með í ferðina að ef rútan getur ekki stoppað beint fyrir framan Alþýðuhúsið þá verður starfsmaður  þar til að leiðbeina fólki hvar hún verður.

Keyrt verður austur yfir Fljótsheiði og Reykjadal til Húsavíkur, austur til Ásbyrgis, þaðan upp Dettifossveg (með stoppum sem gefast), yfir í Mývatnssveit, í Lauga og heim aftur til Akureyrar.

Hádegisverður verður snæddur á veitingahúsinu Veggur við Dettifossveg. Kaffi og meðlæti verða í boði á Hótel Laugum.