Á morgun er síðasti dagur til að sækja um í sjúkra- og fræðslusjóði

Í desember þarf að skila inn umsókn og gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram í síðasta lagi 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf inn umsókn og gögnum til félagsins í síðasta lagi á morgun, 18. desember, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2025.

Athugið að reikningar og kvittanir eru skráð á það ár sem gögn berast. Dæmi: Þú ferð til sjúkraþjálfara í desember en kemur með kvittun í janúar, þá skráist þetta í janúar, s.s. árið eftir að þú ferð í tíma og fer af rétti þess árs. 

Sækið rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Nýjar Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að sækja um sjúkradagpeninga

Hér má sjá reglur um skil á læknisvottorði