9. þing ASÍ-UNG - Elsa Hrönn kjörin í stjórn

ASÍ-UNG hélt árlegt þing, þann 22. september síðastliðinn, í húsi fagfélaganna. Yfirskrift þingsins var „Stefna ASÍ-UNG“ en í aðdraganda þess hafði stjórn lagt til stefnuskjal. Stefnuskjalið var unnið upp úr fjölmörgum tillögum og líflegum umræðum sem mynduðust á vel heppnuðum fræðslu- og tengsladögum í mars þessa árs. Stefnuskjal stjórnar var lagt til umræðu á þinginu og síðar til afgreiðslu. Þá var einnig kosið í stjórn, en fimm sæti stjórnar voru til kosningar, ásamt sætum þriggja varamanna.

Afrakstur þingsins er fullbúið og samþykkt stefnuskjal sem stjórn ASÍ-UNG mun vinna eftir og verður birt á vef ASÍ.

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í aðalstjórn:

  • Ásdís Helga Jóhannsdóttir frá Afli
  • Ástþór Jón Ragnheiðarson frá VLFS
  • Birgitta Ragnarsdóttir frá VR
  • Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir frá Einingu-Iðju
  • Þorvarður Bergmann Kjartansson frá VR

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í varastjórn:

  • Jennifer Schröder frá VR
  • Inga Fanney Rúnarsdóttir frá Verkalýðsfélagi Grindavíkur
  • Elín Ósk Sigurðardóttir frá Verkalýðsfélagi Vesturlands

Í kjölfar þings skipti stjórn með sér verkum og kaus stjórn Ástþór Jón Ragnheiðarson sem formann og Ásdísi Helgu Jóhannsdóttir sem varaformann.

Á vef ASÍ þakkar ASÍ-UNG öllum þingfulltrúum og starfsfólki fyrir þingið og hlakkar til komandi verkefna.