9. þing ASÍ-UNG

9. þing ASÍ-UNG fer fram í Reykjavík á morgun, föstudaginn 22. september 2023. Stjórn ASÍ-UNG hefur samþykkt að þingið beri yfirskriftina "Stefna ASÍ-UNG" og að helstu umræðuefni verði eftir því.

Félagið á rétt að senda tvo aðalfulltrúa og var samþykkt í stjórn Einingar-Iðju að senda sem fulltrúa á þingið þau Elsu Hrönn Gray Auðunsdóttur og Agnar Inga Svansson, sem eru eða hafa verið trúnaðarmenn hjá félaginu.