8. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett á Akureyri í dag

8. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 17:00 í dag, 23. mars, og mun það standa yfir í þrjá daga. Þingið er æðsta vald í málefnum sambandsins en þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára.

Reglulegt þing átti að halda haustið 2021 en því var frestað vegna Covid til vors. Á þingið í ár mæta alls 135 fulltrúar, u.þ.b. 52% konur, frá 19 aðildarfélögum sambandsins. 10 fulltrúar frá Einingu-Iðju munu sitja þingið. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju sem verið hefur formaður sambandins sl. 12 ár, gaf það út sl. vor að hann myndi ekki bjóða sig fram á ný í embættið. 

Dagskrá þingsins verður með nokkuð hefðbundnu sniði en í samræmi  umhverfisstefnu SGS er þingið rafrænt, þ.e.a.s. svo til  engum pappír verður dreift heldur munu gögn þingsins verða aðgengileg á sérstökum þingvef. Þá munu kosningar þingsins sömuleiðis fara fram með rafrænum hætti. 

Kosningar til formanns, varaformanns og framkvæmdarstjórnar fara fram á föstudeginum kl. 10:30. Gert er ráð fyrir að nýr formaður Starfsgreinasambands Íslands slíti þingi kl. 12:00.