8. Þing ASÍ-UNG var haldið á Hotel Natura, föstudaginn 16. september sl. ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar sem sér til þess að hagsmunamál ungra Íslendinga á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.
Eining-Iðja átti tvo fulltrúa á þinginu, þau Unni Hrafnsdóttur og Reynir Magnús Víglundsson, sem bæði eru trúnaðarmenn hjá félginu.
Yfirskrift þingsins að þessu sinni var „Fyrirmyndir komandi kynslóða – Er verkalýðshreyfingin aðlaðandi starfsvettvangur?“ Sérstök áhersla var á heilbrigð og uppbyggileg samskipti auk þess sem sérstaklega var fjallað um nýliðun innan hreyfingarinnar.
Á þinginu var ný stjórn ASÍ-UNG kosin, en hana skipa nú:
Nýkjörin stjórn ASÍ-UNG
Í kjölfar þingsins hélt ný stjórn ASÍ-UNG fyrsta fund stjórnarinnar. Nýr formaður ASÍ-UNG var kosinn á fundinum, Ástþór Jón Ragnheiðarson, Verkalýðsfélagi Suðurlands og varaformaður ASÍ-UNG, Þorvarður Bergmann Kjartansson, VR.