38. þing Alþýðusambands Norðurlands hefst á morgun

38. þing Alþýðusambands Norðurlands (AN) fer fram á Illugastöðum í Fnjóskadal dagana 3. og 4. október nk.

Þing AN skal halda annað hvert ár. Fulltrúar á AN þingi eru 100 sem skiptast á milli aðildarfélaga eftir fjölda félagsmanna skv. skýrslu til ASÍ um félagsmenn frá árinu á undan. Öll félög eiga rétt á að senda að lágmarki tvo fulltrúa.

Eining-Iðja á rétt á að senda 47 fulltrúa á þingið.

Góðir gestir og fyrirlesarar munu mæta á þingið eins og áður. 

Nánari upplýsingar um þingið og dagskrá þess má finna á nýjum þingvef AN.