20,2 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK

Niðurstöður skýrslu sem Talnakönnun vann fyrir stjórn VIRK sýna að 20,2 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2024, reiknað á föstu verðlagi ársins 2024, en rekstrarkostnaður VIRK nam 4,6 milljörðum það sama ár.

Í skýrslunni var einnig reiknaður meðalsparnaður, ávinningur samfélagsins af virkni einstaklinganna, á hvern útskrifaðan þjónustuþega frá VIRK og nam hann 14,3 milljónum króna á árinu 2024, einnig reiknað á föstu verðlagi.

Í skýrslu Talnakönnunar er fundinn mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Sýnt er fram á í skýrslunni, sem verður til umfjöllunar á ársfundi VIRK 29. apríl, að ávinningurinn af starfsendurhæfingarþjónustu VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.

Sjá nánar: