15. júlí er síðasti dagur til að klára að borga Færeyjarferðina

Félagið mun fara í ferð til Færeyja dagana 18. til 24. september 2024 og er vert er að minna félagsmenn sem skráðu sig í ferðina að greiða þarf lokagreiðslu fyrir hana í síðasta lagi mánudaginn 15. júlí nk. á skrifstofum félagsins.

Einnig er hægt að hringja í síma 460 3600 til að fá upplýsingar með að millifæra.

-----

Dagsferð í Kerlingarfjöll - laugardaginn 24. ágúst - kr. 10.000

Við bendum áhugasömum félagsmönnum á að enn eru nokkur sæti laus í ferð sem farin verður í Kerlingarfjöll í ágúst. Það er því ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir félagsmenn sem hug hafa á að fara með. Kíkið við á skrifstofur félagsins eða hringið í síma 460 3600 og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

Tekið skal fram að þetta er löng dagleið, ekki innan við 13 tíma ferð, og vegir ekki góðir hluta leiðarinnar. Farið verður eins og leið liggur í Blöndudal og þaðan suður Kjöl í Kerlingarfjöll með viðkomu á ýmsum stöðum, m.a. Hveravöllum.

  • Hámarksfjöldi er 90 manns.
  • Hafa þarf með sér nesti fyrir allan daginn.
  • Farið verður með rútu frá Akureyri kl. 8:00.
  • Leiðsögumaður verður með í för.
  • Ferðin kostar kr. 10.000 á mann. Greiða þarf fyrir ferðina í síðasta lagi föstudaginn 16. ágúst á skrifstofum félagsins. Hægt er að hringja í síma 460 3600 til að fá upplýsingar með að millifæra.
  • Innifalið er akstur, leiðsögn og áningargjöld.