Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi Pajero) með 18´´ álfelgu (265/60R18) sem var ódýrust á 5.000 kr. hjá Titancar en dýrust á 14.010 kr. hjá N1 verðmunurinn var 9.010 kr. eða 180%. Fyrir stálfelgu af sömu stærð var ódýrast að umfelga á 5.000 kr. hjá Titancar en dýrast á 12.685 kr. hjá Höldur dekkjaverkstæði Akureyri. Verðmunurinn var 7.685 kr. eða 154%.
Minnstur verðmunur í könnuninni var á dekkjaskiptum fyrir meðalbíl (t.d. Subaru Legacy) á 16´´ stálfelgum (205/55R16) en hún var ódýrust á 5.000 kr. hjá Titancar en dýrust á 7.420 kr. hjá N1, verðmunurinn var 2.420 kr. eða 48%. Fyrir bíl á álfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 5.000 kr. hjá Titancar en dýrust á 8.614 kr. hjá N1. Verðmunurinn var 3.614 kr. eða 72%.
12 hjólbarðaverkstæði með sama verð og í fyrra
Af þeim hjólbarðaverkstæðum sem borin eru saman á milli ára hafa 13 þeirra ekki hækkað hjá sér verðið á
þjónustu við dekkjaskipti á meðalbíl með 15´´ álfelgu (195/65R15) frá því í október 2013. Mesta
hækkunin var hjá Dekkjahúsinu um 10% og þar á eftir kom hækkun hjá Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns um 8%, hjá N1 um 7%,
hjá VIP dekk um 6%, hjá Gúmmívinnustofa SP dekk um 5% og hjá Hjólbarða og smurþjónustunni Klöpp og Bernard um 1%. Verð
þjónustunnar hefur lækkað hjá Dekkverk um 500 kr. milli ára sem er lækkun upp á 9%.
Sjá nánar niðurstöður í töflu.
Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Dekkjahöllin, Barðinn, Pústþjónusta BJB, Askja, Hjólbarðaþjónusta Magnúsar, Toyota/Bílaverkstæði Austurlands, Bílaáttan, Kraftbílar, Bílverið, Sólning og Hjólbarðaverkstæði Kaldasels neituðu þátttöku í könnuninni
Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15, 16 og 18´´ á 29 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Verðin í könnuninni eru án afsláttar en verkstæðin bjóða upp á margskonar afsætti t.d. FÍB, eldri borgara og staðgreiðslu, viðskiptavinir eru því hvattir til að spyrja um afslátt.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.