1. maí - Tökum þátt í hátíðarhöldunum á morgun

Það verður dagskrá á morgun í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og …
Það verður dagskrá á morgun í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt í hátíðarhöldunum.

Það verður dagskrá á morgun í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt í hátíðarhöldunum. 

Dagskrá á Akureyri

Kröfuganga mánudaginn 1. maí
13:30 - Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
14:00 - Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu

  • Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna - Kristín Konráðsdóttir, félagi í Sameyki
  • Hátíðarræða - Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis
  • Kaffiveitingar að dagskrá lokinni

Bryndís Ásmundsdóttir stýrir dagskránni og syngur vel valin lög.
Söngur og gleði með góðum gestum úr Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri. 

Dagskrá í Fjallabyggð

  • Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði, milli kl. 14:30 og 17:00
  • Ávarp frá 1. maí nefnd stéttarfélaganna
  • Kaffiveitingar