1. maí - Tökum þátt í hátíðarhöldunum

Það verður dagskrá næsta miðvikudag í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í v…
Það verður dagskrá næsta miðvikudag í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt í hátíðarhöldunum.

Alþjóðlegur baráttudagur launafólks verður haldinn hátíðlegur með dagskrá á Akureyri og í Fjallabyggð miðvikudaginn 1. maí.

Í ár fylkjum við liði undir kjörorðunum Sterk hreyfing - Sterkt samfélag og hvetjum við félagsfólk til þess að sýna samstöðu með því að fjölmenna í kröfugöngu og taka þátt í hátíðardagskrá. 

Dagskrá á Akureyri

Kröfuganga

13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu

  • Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna
  • Hátíðarræða, Finnbjörn A. Hermannsson – forseti ASÍ
  • Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum um Gosa
  • Ívar Helgason tekur lagið 

Kaffihressing að dagskrá lokinni

Pylsur, safi og andlitsmálning fyrir börnin

Dagskrá í Fjallabyggð

Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði milli kl. 14:30 og 17:00 

Ávarp frá 1. maí nefnd stéttarfélaganna og kaffiveitingar