1. maí kveðja forseta ASÍ 2024

Kæru félagar og landsmenn allir.

Yfirskrift þessa baráttudags okkar er að þessu sinni „Sterk hreyfing – sterkt samfélag”. Hún vísar til þess að verkalýðshreyfingin hefur öðrum fremur mótað Ísland sem velferðarsamfélag.

Barátta launafólks er nú sem áður byggð á grunni hugsjóna um réttlátt samfélag, samhygð og bætt kjör. Verkalýðshreyfingin er sterkasta afl framfara og breytinga í landinu.

Nú er sótt að réttindum okkar og kjörum. Fjármagnsöflin ásælast auðlindir þjóðarinnar og hyggjast sem fyrr beita einkavæðingu til að komast yfir þær. Þetta á við um raforkuna, landið, vindinn og vatnið. Já, það á að hlunnfara þjóðina eina ferðina enn.

Jafnframt hyggjast stjórnvöld hefja einkavæðingu ellinnar með grundvallarbreytingu á rekstri hjúkrunarheimila.

Ágætu félagar,

Þetta eru stórhættuleg áform og bein ógn við velferðarríkið.

Ég hvet ykkur öll að styðja verkalýðshreyfinguna í varðstöðu um hagsmuni og velferð almennings í landinu. Ég hvet ykkur til að taka beinan þátt í henni til dæmis með virkri þátttöku í stéttarfélögunum sem ÞIÐ eigið og ÞIÐ ráðið.

Kæru vinir - aflið býr í ykkur!

Til hamingju með daginn!

Hér má horfa á kveðjuna á YouTube