Trúnaðarmannanámskeið | Starfsemi félagsins, kjarasamningar og sjóðir - Staðnám

Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman. Sum námskeiðanna eru kennd í fjarnámi en hin í staðnámi.

Staðnám verður nú tveir dagar í senn (í stað þriggja daga áður), en hvor dagur er eitt námskeið.

Föstudaginn 20. september verður námskeiðið Starfsemi félagsins, kjarasamningar og sjóðir haldið í sal félagsins á Akureyri.

Skráning á námskeið fer fram á vef Félagsmálaskólans.