Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman. Boðið er upp á staðnám, fjarnám og vefnám.
Staðnám er nú einn dagur í senn í stað þriggja áður.
Fimmtudaginn 20. mars 2025 verður námskeiðið Samskipti á vinnustað haldið í sal félagsins á Akureyri.
Skráning á námskeið fer fram á vef Félagsmálaskólans.