Trúnaðarmannanámskeið - staðnám | Lestur launaseðla og launaútreikningar

Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman. Boðið er upp á staðnám, fjarnám og vefnám.

Staðnám er nú einn dagur í senn í stað þriggja áður.

Fimmtudaginn 20. febrúar 2025 verður námskeiðið Lestur launaseðla og launaútreikningar haldið í sal félagsins á Akureyri.

Skráning á námskeið fer fram á vef Félagsmálaskólans.