Trúnaðarmannanámskeið - fjarnám | Að koma máli sínu á framfæri

Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman. Boðið er upp á staðnám, fjarnám og vefnám.

Þriðjudaginn 15. apríl 2025 verður námskeiðið Að koma máli sínu á framfæri haldið rafrænt á Zoom.

Skráning á námskeið fer fram á vef Félagsmálaskólans.