Fulltrúaráðsfundur Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa boðaði til rafræns fundar fulltrúaráðs þriðjudaginn 15. apríl 2025 kl. 16:30. Félagið á rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Á fundinum verður m.a. farið yfir lykiltölur, breytingar á samþykktum undirbúnar fyrir ársfund og tilnefningar í stjórn sjóðsins staðfestar. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.

Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 2. maí 2024 sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa.

Hlekkur á fund og upplýsingar um atkvæðagreiðslu verða sendar fulltrúum í tölvupósti þegar nær dregur fundi.

Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.

Drög að dagskrá fundarins eru eftirfarandi:

  1. Setning fulltrúaráðsfundar
  2. Lykiltölur úr afkomu
  3. Starfskjarastefna
  4. Tillögur að samþykktarbreytingum
  5. Staðfesting tilnefninga í stjórn
  6. Önnur mál