Aðalfundur Einingar-Iðju 2025

Þriðjudaginn 22. apríl 2025 fer fram aðalfundur Einingar-Iðju. Fundurinn hefst kl. 18:00 og verður á Hótel KEA / Múlabergi á Akureyri. Félagsfólk, fjölmennum á fundinn!  ATHUGIÐ! fundurinn mun hefjast fyrr en síðustu ár.

Veitingar í boði

Dagskrá

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Kosning í fulltrúaráð Stapa lífeyrissjóðs
  3. Önnur mál.
  • Boðið verður upp á akstur til Akureyrar frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík.
  • Skráning fer fram í síma 460 3600.
  • Skráningu lýkur kl. 13:00 á fundardegi.