46. þing ASÍ

Dagana 16. til 18. október 2024 verður 46. þing Alþýðusambands Íslands haldið í Reykjavík.

Æðsta vald í málefnum ASÍ er í höndum þinga ASÍ sem haldin eru á tveggja ára fresti. Hvert aðildarfélag á rétt á að senda a.m.k. einn fulltrúa á þing sambandsins, en á það eiga rétt á að mæta þrjú hundruð fulltrúar launafólks af öllu landinu til að móta heildarsamtökunum stefnu og starfsáætlun og velja þeim forystu.

Nánari upplýsingar um þingið og dagskrá er að finna á þingvef 46. þings ASÍ.