Veiðikortið

Eining-Iðja býður félagsmönnum sínum að kaupa Veiðikortið á sérkjörum á árinu 2019. Kortið er til sölu á skrifstofum félagsins á aðeins kr. 3.300 en fullt verð er kr. 7.900.

Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Veiðikortið veitir nær ótakmarkaðan aðgang að 34 vatnasvæðum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra.

Nú gefst fólki loksins kostur á að stoppa við falleg vötn, í skemmri eða lengri tíma, án þess að þurfa að eyða miklum tíma í að finna út hvert á að fara til að kaupa veiðileyfi, eða hvort það sé fiskur í vatninu og þar fram eftir götum. 

Með kortinu fylgir veglegur bæklingur og í honum eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur, kort og myndir.  Einnig eru grunnupplýsingar á ensku í bæklingnum. Allan texta í bæklingi, bæði á íslensku og ensku, má finna á heimasíðu kortsins og auk þess er þar að finna rafræna útgáfu.

Veiðikortið er stílað á einn einstakling og þurfa korthafar að merkja kortið með kennitölu sinni í þar til gerðan reit. Þegar skráning fer fram hjá landeiganda eða veiðiverði ber að sýna Veiðikortið og persónuskilríki eða samkvæmt reglum í bæklingi. Veiðimenn eru hvattir til að ganga vel um veiðisvæðin og skilja ekki eftir sig rusl eða önnur ummerki.
Kortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd með korthafa. Eiganda kortsins ber að merkja kortið á bakhlið með kennitölu sinni. Veiðimönnum ber að virða þær reglur sem kynntar eru á upplýsingasíðum vatnanna, en mismunandi reglur geta gilt á milli vatnasvæðanna.