Vörukarfan hækkað í átta verslunum

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í átta verslunum frá því í febrúar 2016 þar til nú um miðjan júní. Í þremur verslunum hefur vörukarfan lækkað, mest um 1,5% hjá Krónunni og um 1,4% hjá Bónus. Á sama tímabili hefur matur og drykkur hækkað um 0,4% í vísitölu neysluverðs.

Á meðfylgjandi súluriti má sjá hvernig verð vörukörfunnar breytist. Mesta hækkunin er 3,2% hjá Iceland, 2,8% hjá Hagkaupum, um 2,5% hjá 10/11 og um 1,5% hjá Nettó en minna hjá Samkaupum-Úrval, Samkaupum-Strax, Víði og Kjarval eða undir 0,6%. Mesta lækkunin er 1,5% hjá Krónunni og um 1,4% hjá Bónus en minni lækkun er hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga eða 0,3%.

 Breytingar í öllum vöruflokkum

Í meðfylgjandi töflu má sjá verðbreytingar á milli mælinga í einstaka vöruflokkum. Töluverðar verðbreytingar eru í öllum vöruflokkum hjá öllum verslununum. Sem dæmi um hækkanir hefur vöruflokkurinn sætindi hækkað hjá 9 verslunum af 11, mest um 10% hjá Iceland, um 9% hjá 10/11, um 5,8% hjá Víði, um 4,4% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga, um 4% hjá Nettó, um 3% hjá Hagkaupum, um 2,5% hjá Samkaupum-Strax, um 1,7% hjá Kjarval  og um 0,5% hjá Samkaupum-Úrval en lækkað í verði hjá Bónus um 0,6% og um 0,8% hjá Krónunni.

Grænmeti og ávextir hafa lækkað í verði í 6 verslunum af 11, mest um 13,6% hjá Bónus, um 10,5% hjá Krónunni, um 6,5% hjá Víði og um 6,3% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga en minna hjá Iceland og Samkaupum-Strax. Mest hækkaði vöruflokkurinn um 6,7% hjá 10/11 og um 4,1% hjá Kjarval en minna hjá Nettó, Hagkaupum, og Samkaupum-Úrval.

Vöruflokkurinn kjötvörur hefur hækkað í verði í 7 verslunum af 11 mest um 9,4% hjá Víði, 4,2% hjá Bónus, 4,1% hjá Iceland og Hagkaupum en minna hjá Nettó, Samkaupum-Úrval og 10/11. Hjá Krónunni, Samkaupum-Strax, Kjarval og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga er vöruflokkurinn að lækka örlítið í verði.

 

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðal heimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu hennar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kjarval, og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar  milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

 Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.