Mikilvægt er að einstaklingar í starfsendurhæfingu nýti sér bjargráðin og verkfærin sem þeir hafa tileinkað sér í starfsendurhæfingu hjá VIRK til þess að takast á við möguleg bakslög nú á tímum COVID-19.
Bakslag er eðlilegur hluti af bataferli. Mikilvægt er að læra að þekkja viðvörunarmerki sín og vera meðvitaður hvernig hægt sé að mæta þeim.
Starfsfólk VIRK hefur safnað saman á vefsíðu VIRK bjargráðum og verkfærum sem vinna gegn bakslagi ásamt virknihugmyndum, hollráðum sérfræðinga VIRK og myndböndum frá atvinnulífstenglum með gagnlegum skilaboðum.