VIRK - Atvinnuþátttaka stuðlar að heilbrigðu samfélagi

Á heimasíðu VIRK segir að atvinnuþátttaka efli samfélagið, stuðli að verðmætasköpun og eykur lífsgæði, það vilja allir vera þátttakendur í samfélaginu. Hafa hlutverk, finna að okkar sé þörf, tilheyra hópi og leggja okkar af mörkum. Öll viljum við reyna á okkur, setja okkur markmið, finna styrkleika okkar og glíma við hæfileg verkefni.

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður hefur frá upphafi átt gott samstarf við atvinnulífið en undanfarin ár hefur verið gert átak í því hjá VIRK að aðstoða sérstaklega þá einstaklinga sem ekki hafa fulla vinnugetu í lok starfsendurhæfingar og þurfa því meiri þjónustu og aukna aðstoð út á vinnumarkaðinn.

Um tíu þúsund einstaklingar eru nú virkir á vinnumarkaði eftir starfsendurhæfingu hjá VIRK og samvinna VIRK við fyrirtæki og stofnanir skilar sér árlega í hundruðum nýrra starfa fyrir fólk með skerta starfsgetu. 

VIRK ráðgjafar í Eyjafirði

Á Eyjafjarðarsvæðinu starfa fjórir ráðgjafar hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði, þær, Helga Þyri sem jafnframt er verkefnastjóri á svæðinu, Kristín, Nicole og Svana. Þær eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu. Þær eru með aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri.
  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík á þriðjudögum. 
  • Svana er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð á miðvikudögum 
Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK. Hann er starfmaður Framsýnar, en starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri tvo daga í viku. Hann er með síma 464 6608 og netfangið virk@framsyn.is