Vinnustaðaheimsóknir og fundur í Grímsey

Eining-Iðja boðar til félagsfundar Þriðjudaginn 2. október 2012 kl. 20:00 í félagsheimilinu í Grímsey. Sama dag munu starfsmenn félagsins kíkja í vinnustaðaheimsóknir á staðnum.

Fundarefni:

  1. Kjarasamningar Einingar-Iðju
  2. Réttindi úr sjóðum félagsins
  3. Kynning á Virk starfsendurhæfingarsjóði
  4. Önnur mál

 

Á fundinn mæta:

  • Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju
  • Anna Júlíusdóttir, varaformaður Einingar-Iðju
  • Anna Guðný Guðmundsdóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Virk.

Allir velkomnir

Á fundinum verður túlkað yfir á Pólsku.