Vinnustaðafundir

Á hverju ári fara starfsmenn félagsins á fjölmarga vinnustaðafundi á félagssvæðinu, en samkvæmt kjarasamningum eiga starfsmenn rétt á að halda tvo fundi á ári á launum á sínum vinnustað, klukkutíma í senn. Slíkur fundir verða þó að vera í samráði og með leyfi yfirmanna. Í gær fór einn slíkur fram í grunnskólanum á Dalvík og mætti Björn formaður á hann ásamt Helgu, þjónustufulltrúa Einingar-Iðju á Dalvík, og Ásgrími upplýsingafulltrúa.

Ekkert þarf að vera að á vinnustaðnum til að halda svona fund. Það er mjög mikilvægt að hitta félagsmenn, gefa upplýsingar og ekki síður að svara fyrirspurnum frá þeim. Oftast eru það formaður og varaformaður félagsins sem mæta á slíka fundi en einnig er hægt að óska eftir að fulltrúi frá Virk endurhæfingarsjóði mæti líka.

Þeir sem áhuga hafa á að halda vinnustaðafund er bent á að hafa samband við félagið í síma 460 3600 eða senda póst á bjorn@ein.is eða annajul@ein.is.