Vinnumarkaður í október

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 189.400 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í október 2015, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 182.200 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir október 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka minnkaði um 0,8 prósentustig og hlutfall starfandi fólks stóð nánast í stað. Atvinnuleysi dróst hins vegar saman um 1,2 prósentustig frá því í október 2014, úr 5% í 3,8%.