Vinningshafi í spurningaleik stéttarfélaganna við Eyjafjörð

Alls tóku 306 aðilar á aldrinum 16 til 25 ára þátt í spurningaleik stéttarfélaganna við Eyjafjörð í tilefni af 1. maí. Af þeim sem svöruðu öllum spurningum rétt var dreginn út einn aðalvinningshafi og var sú heppna Karen Júlía Arnarsdóttir.

Karen tók á móti gjafakorti að upphæð kr. 100.000 í Alþýðuhúsinu á dögunum. Jafnframt voru dregnir úr 10 vinningar að upphæð 10.000 kr. meðal allra þáttakenda og er búið að hafa samband við vinningshafa í gegnum netfang þeirra. 

Stéttarfélögin þakka öllum þeim sem tóku þátt og óska vinningshöfum til hamingju.