Vinningshafar úr jólablaði Einingar-Iðju

Í lok janúar var dregið úr fjölmörgum réttum innsendum lausnum verðlaunagetraunar og verðlaunakrossgátu sem birtust í jólablaði Einingar-Iðju í desember sl.

Rétt svar í verðlaunagetrauninni, þar sem spurt var: Hvað heitir varaformaður Opinberu deildar félagsins? Var svar númer 3: Guðbjörg Helga Andrésdóttir.

Rétt lausnarorð í verðlaunakrossgátunni: Betra er að bogna en bresta.

Á myndinni má sjá Margréti Einarsdóttur, innheimtustjóra félagsins, og Sigrúnu Lárusdóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra félagsins, sem drógu út nöfn heppinna vinningshafa þetta árið, en fjölmargir sendu inn réttar lausnir. Nöfnin sem dregin voru út eru eftirfarandi:

Krossgáta

  • Oddný Hjaltadóttir fékk gjafabréf í HOF menningarhús að verðmæti kr. 20.000.
  • Þórdís G. Þórhallsdóttir fékk gjafabréf frá Glerártorgi að verðmæti kr. 10.000.

Getraun

  • Baldvin Hreinn Eiðsson fékk gjafabréf frá Glerártorgi að verðmæti kr. 10.000.
  • Jóhanna Sigurðardóttir fékk gjafabréf í HOF menningarhús að verðmæti kr. 10.000.

Eining-Iðja óskar vinningshöfunum til hamingju.