Vinningshafar úr jólablaði Einingar-Iðju

Búið er að draga úr fjölmörgum réttum innsendum lausnum verðlaunagetraunar og verðlaunakrossgátu sem birtust í jólablaði Einingar-Iðju í desember sl.

Rétt svar í verðlaunagetrauninni, þar sem spurt var: Hvað heitir starfsmaður félagsins á Dalvík? Var svar númer 5: Helga Níelsdóttir.

Rétt lausnarorð í verðlaunakrossgátunni: Hamra skal járnið meðan heitt er

Á myndinni má sjá Heimi Kristinsson, varaformann Byggiðnar, sem var fenginn til að draga út nöfn heppinna vinningshafa en fjölmargir sendu inn réttar lausnir. Nöfnin sem dregin voru út eru eftirfarandi:

Krossgáta

  • Kristín J. Agnarsdóttir fékk gjafabréf í HOF menningarhús að verðmæti kr. 20.000.
  • Ragna Pálsdóttir fékk gjafabréf frá Strikinu að verðmæti kr. 10.000.

Getraun

  • Hersteinn Karl Valgarðsson fékk gjafabréf frá Strikinu að verðmæti kr. 10.000.
  • Rúnar Halldórsson fékk gjafabréf í HOF menningarhús að verðmæti kr. 10.000.

Eining-Iðja óskar vinningshöfunum til hamingju. Haft verður samband við þá við fyrsta hentugleika.