Búið er að draga úr fjölmörgum réttum innsendum lausnum verðlaunagetraunar og verðlaunakrossgátu sem birtust í jólablaði Einingar-Iðju í desember sl.
Rétt svar í verðlaunagetrauninni, þar sem spurt var: Hvað heitir varaformaður Iðnaðar- og tækjadeildar félagsins? var svar númer 3: Svavar Magnússon.
Rétt lausnarorð í verðlaunakrossgátunni var: Oft er deigt hjarta undir dýrri brynju.
Á myndinni má sjá Soffíu Gísladóttur, forstöðumann Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra, sem var fengin til að draga út nöfn heppinna vinningshafa en fjölmargir sendu inn réttar lausnir. Með henni á myndinni er Sigrún Lárusdóttir, skrifstofustjóra félagsins, sem sá til þess að allt færi rétt fram. Nöfnin sem dregin voru út eru eftirfarandi:
Krossgáta
Getraun
Eining-Iðja óskar vinningshöfunum til hamingju. Haft verður samband við þá við fyrsta hentugleika.