Vinningshafar úr jólablaði Einingar-Iðju

Búið er að draga úr fjölmörgum réttum innsendum lausnum verðlaunagetraunar og verðlaunakrossgátu sem birtust í jólablaði Einingar-Iðju í desember sl.

Rétt svar í verðlaunagetrauninni, þar sem spurt var: Hvað heitir skrifstofustjóri félagsins? var svar númer 4: Sigrún Lárusdóttir.

Rétt lausnarorð í verðlaunakrossgátunni var: Þetta var nú frekar auðveld krossgáta

Á myndinni má sjá Eyrúnu Höllu Eyjólfsdóttur, nýjan starfsmann félagsins, sem var fenginn til að draga út nöfn heppinna vinningshafa en fjölmargir sendu inn réttar lausnir. Með henni á myndinni er Anna Júlíusdóttir varaformaður sem sá til þess að allt færi rétt fram. Nöfnin sem dregin voru út eru eftirfarandi:

Krossgáta

Gjafabréf í HOF menningarhús að verðmæti kr. 20.000.

Gunnhildur Sigurjónsdóttir, Hrísey

Gjafabréf frá Strikinu að verðmæti kr. 10.000.

Erla Hrönn Ásmundsdóttir, Akureyri

 

Getraun

Gjafabréf frá Strikinu að verðmæti kr. 10.000.

Gunnar Ingi Lárusson, Akureyri

Gjafabréf í HOF menningarhús að verðmæti kr. 10.000.

Heiðrún Jónsdóttir, Akureyri

 

Eining-Iðja óskar vinningshöfunum til hamingju. Haft verður samband við þá við fyrsta hentugleika.