Vinningshafar af aðalfundi

Til hamingju
Til hamingju

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var fimmtudaginn 10. apríl sl. var efnt til happdrættis. Nöfn allra, sem mættu á fundinn voru sett í kassa og svo voru nöfn fimm heppinna Einingar-Iðjufélaga dregin út.

Aðalvinningur kvöldsins var ferð fyrir tvo austur á land í síðsumarferð félagsins. Einnig tvö gjafabréf á veitingahúsið Strikið eða Bryggjuna, hvort að upphæð kr. 10.000 og tvær helgarleigur í orlofshúsi félagsins á Illugastöðum næsta vetur.

Nöfn eftirfarandi félagsmanna voru dregin úr pottinum:

  • Dagbjört Óskarsdóttir fékk gjafabréf sem gildir fyrir tvo í Síðsumarferð félagsins austur á land dagana 11. til 14 ágúst 2014.
  • Róbert Þorsteinsson og Helga Ingólfsdóttir fengu gjafabréf að verðmæti kr. 10.000 á Strikið eða Bryggjuna.
  • Ingvar Kristjánsson og Tryggvi Jóhannsson fengu helgarleigur á Illugastöðum næsta vetur.