Vinningshafar af aðalfundi

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var sl. þriðjudag var efnt til happdrættis. Nöfn allra, sem mættu á fundinn voru sett í kassa og svo voru nöfn sex heppinna Einingar-Iðjufélaga dregin út.

Vinningar kvöldsins var bakpoki sem merkur er félaginu, tvö gjafabréf í Menningarhúsið HOF, hvort að upphæð kr. 10.000, og tvö gjafabréf á veitingahúsið Strikið, hvort að upphæð kr. 10.000. Aðalvinningur kvöldsins var tveggja binda ritverkið Saga ASÍ sem kom nýlega út.

Hægt er að nota gjafabréfin í HOF við miðakaup á alla viðburði í Hofi, í verslunina og á veitingastaðnum 1862 Nordic Bistro. Gjafabréfin á Strikið má nota til að fá sér dýrindis mat á stað sem býður upp á frábært útsýni yfir Eyjafjörðinn og Akureyri.

Nöfn eftirfarandi félagsmanna voru dregin úr pottinum:

  • Ásta Gestsdóttir fékk Sögu ASÍ.
  • Elsa Sigmundsdóttir og Magnús Björnsson fengu gjafabréf í HOF.
  • Auður Þorsteindóttir og Steinþór Lúthersson fengu gjafabréf á Strikið.
  • Sigurður Sigurðsson fékk bakpoka.