VINNAN - vefrit ASÍ

Vinnan er tímarit sem Alþýðusambandið gaf fyrst út árið 1943. Í fyrsta tölublaðið skrifuðu m.a. Halldór Laxness og Steinn Steinarr. Þessir jöfrar íslenskra bókmennta gáfu tóninn en síðan hafa margir mætir menn komið að útgáfunni sem hefur verið nær sleitulaus allan þennan tíma. VINNAN er nú vefrit og kom nýjasta tölublað þess á vefinn í dag.

Í vefritinu má m.a. finna 1. maí ávarp forseta ASÍ og ýmsar greinar og viðtöl. M.a. voru sex konur sem starfa hjá stéttarfélögum víðs vegar um landið teknar tali og spurðar nokkurra spurninga, þar á meðal Nicole Kristjánsson starfsmaður Einingar-Iðju. Svör þeirra má sjá hér