Bréfið í heild má lesa hér fyrir neðan:
Hvaða störf og hvenær?
Í reglugerðinni er fjallað ítarlega um hvaða störf mismunandi hópar mega vinna og ekki vinna þó sú upptalning sé ekki tæmandi. Vakin er athygli á að ungmenni undir 18 ára aldri mega ekki vinna með hættuleg tæki eða að hættulegum verkefnum, sbr. 10. gr. og viðauka. Í reglugerðinni er einnig fjallað um áhættumat, leiðbeiningar og kennslu, vinnutíma, kvöld- og næturvinnu og hvíldartíma.
Áhættumat
Samkvæmt 5. gr. reglugerðarinnar er atvinnurekanda skylt að gera áhættumat og viðeigandi ráðstafanir byggðar á niðurstöðum matsins til að tryggja öryggi og heilsu ungmenna. Þetta skal gert áður en þau hefja störf og í hvert sinn sem verulegar breytingar eru gerðar á starfsskilyrðum þeirra. Vinnueftirlitið beinir því til forráðamanna að slíkt áhættumat verði gert áður en störf hefjast í sumar, liggi það ekki fyrir nú þegar. Leiðbeiningar um áhættumat er að finna á heimasíðu stofnunarinnar.
Vinnuvernd alla ævi
Vinnueftirlitið vekur athygli á þema Evrópsku vinnuverndarvikunnar 2016-2017 „Vinnuvernd alla ævi“ en með því er verið að leggja áherslu á mikilvægi forvarna frá upphafi starfsævinnar, sjá http://www.vinnueftirlit.is/vinnuvernd/vinnuverndarvikur/2016/. Vinnueftirlitið hvetur forsvarsmenn til að kynna sér efni heimasíðunnar en þar er að finna hagnýtar upplýsingar til að stuðla að sjálfbærri vinnu alla ævi og heilbrigðri öldrun. Jafnframt er vakin athygli á ráðstefnu vinnuverndarvikunnar þann 20. október nk. en hún verður auglýst nánar þegar nær dregur.
Ef spurningar vakna varðandi erindi bréfsins er velkomið að hafa samband við skrifstofur Vinnueftirlitsins, sjá nánar á heimasíðunni www.vinnueftirlit.is.