Viltu verða varamaður í stjórn STAPA?

Á næsta aðalfundi Einingar-Iðju, sem haldinn verður 10. apríl nk. í HOFI á Akureyri, verður kosið um fulltrúa félagsins sem verður varamaður í stjórn lífeyrissjóðsins STAPA á næsta starfsári. Félagsmenn sem áhuga hafa eru hvattir til að bjóða sig fram og hafa samband við félagið til að fá nánari upplýsingar.