Viltu vera í fulltrúaráði Stapa?

Á næsta aðalfundi Einingar-Iðju, sem haldinn verður 6. apríl nk. í HOFI á Akureyri, verður m.a. kosið um 38 fulltrúa félagsins á ársfund Stapa sem verður haldinn 3. maí nk., nánari staðsetning og tímasetning verða auglýstar síðar. 

Félagsmenn sem áhuga á að vera í fulltrúaráði Stapa á næsta ársfundi eru hvattir til að bjóða sig fram sem fyrst og hafa samband við skrifstofu félagsins á Akureyri til að fá nánari upplýsingar.