Viðvera í Fjallabyggð - smá breyting

Samkvæmt áætlun átti að vera viðvera á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð milli kl. 12 og 16 á morgun, en samningaviðræður setja smá strik í reikninginn og því mun viðveran verða næsta miðvikudag í staðinn. Anna varaformaður verður með viðveru á skrifstofunni þann dag milli kl. 12 og 16. Tímapantanir óþarfarTímapantanir óþarfar

Björn formaður, Anna varaformaður, Eyrún þjónustufulltrúi eða Hafdís lögfræðingur og þjónustufulltrúi verða til viðtals eftirfarandi daga í vetur.

  • 4. september 
  • 2. október
  • 6. nóvember
  • 4. desember
  • 8. janúar 2019
  • 5. febrúar 2019
  • 6. mars 2019
  • 2. apríl 2019
  • 7. maí 2019