Viðreisn í heimsókn

Í morgun komu þingmenn Viðreisnar í heimsón á skrifstofu félagsins á Akureyri til að kynna sér félagið og starfsemi þess. Björn formaður ræddi við þau og fór m.a. yfir undirbúning félagsins vegna þeirra kjarasamningaviðræðna sem nú eru í gangi og stöðuna í þeim viðræðum. 

Í lok heimsóknar færði Björn þingflokknum að gjöf bókina „Til starfs og stórra sigra“ – Saga Einingar-Iðju 1906-2004.