Viðræðunefnd SGS ákveður næstu skref

Viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins kom saman á fundi kl. 9:00 í morgun og fór yfir stöðuna í kjaraviðræðunum, m.a. með hliðsjón af rýru útspili stjórnvalda í gær.

Viðræðunefndin mun eiga samningafund með Samtökum atvinnulífsins kl. 16:00 í dag. Á fundinum verða sanngjarnar kröfur SGS ítrekaðar.