Við mætum til þín í vetur - Hrísey á morgun

Starfsmenn félagsins á kjarasviði, Björn formaður, Anna varaformaður, Eyrún þjónustufulltrúi eða Hafdís lögfræðingur og þjónustufulltrúi, verða til viðtals á skrifstofum félagsins á Dalvík og Fjallabyggð og einnig í Hrísey og Grenivík í vetur. Tímasetningar má sjá neðar í fréttinni.


Á morgun, þriðjudaginn 18. desember, verður Eyrún til viðtals í Verbúðinni í Hrísey milli kl. 14:00 og 16:30.

Tímapantanir óþarfar og við vonumst til að sjá sem flesta.

Verið velkomin!

Hér má sjá dagsetningar yfir viðverur vetrarins.