Við mætum til þín í vetur - Grenivík í dag

Starfsmenn félagsins á kjarasviði, Björn formaður, Anna varaformaður, Eyrún þjónustufulltrúi og Hafdís lögfræðingur og þjónustufulltrúi, verða til viðtals á skrifstofum félagsins á Dalvík og Fjallabyggð og einnig í Hrísey og Grenivík í vetur. Tímasetningar má sjá neðar í fréttinni. 

Í dag, þriðjudaginn 11. september, verða Anna og Hafdís til viðtals á Kontornum á Grenivík milli kl. 15 og 17.

Tímapantanir óþarfar og við vonumst til að sjá sem flesta.

Verið velkomin!

Hér má sjá dagsetningar yfir viðverur vetrarins.