Við mætum til þín í vetur - Dalvík í dag

Starfsmenn félagsins á kjarasviði, Björn formaður, Anna varaformaður, Eyrún þjónustufulltrúi og Hafdís lögfræðingur og þjónustufulltrúi, verða til viðtals á skrifstofum félagsins á Dalvík og Fjallabyggð og einnig í Hrísey og Grenivík í vetur. Tímasetningar má sjá neðar í fréttinni. 

Í dag, fimmtudaginn 25. október, verður Hafdís til viðtals á skrifstofu félagsins á Dalvík milli kl. 12 og 16. 

Tímapantanir óþarfar og við vonumst til að sjá sem flesta.

Verið velkomin!

Hér má sjá dagsetningar yfir viðverur vetrarins.