Vetrarríki á Illugastöðum

Mjög mikill snjór er á Illugastöðum þessa dagana. Í myndasafni með fréttinni sem finna má aðeins neðar sást hve gríðarlegt magn af snjó er á svæðinu og sennilega skilja allir af hverju það verður ekki mokað að húsunum fyrir næstu helgi. Aðeins verður fært á bílaplönin, en þaðan þarf að labba í húsin og moka af pöllum og af pottlokum ef menn ætla að kíkja í pottinn.

Hér má sjá fleiri myndir sem staðarhaldarinn á Illugastöðum tók sl. laugardag og mánudag