Vetrarleiga orlofshúsa og íbúða

Vert er að minna á að félagsmenn geta séð laus orlofshús og leigt þau á auðveldan hátt á orlofsvef félagsins

Yfir vetrartímann eru í boði helgarleigur í orlofshúsum á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og vikuleigur í orlofsíbúðum félagsins á Höfuðborgarsvæðinu. 

Athugið að frá 1. október ár hvert sér staðarhaldari um að bóka hús á Einarstöðum. Síminn hjá honum er 861 8310. 

Helgarleiga er þrjár nætur, frá fimmtudegi til sunnudags, eða frá föstudegi til mánudags. 

Eins og áður segir er auðveldast að panta á orlofsvef félagsins, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins á hefðbundnum opnunartíma og panta hús eða bústað.