Vetrarleiga orlofshúsa og íbúða

Vert er að minna á að félagsmenn geta séð laus orlofshús og leigt þau á auðveldan hátt á orlofsvef félagsins

Vetrarleigutímabilið hefst á morgun, þann 1. september. og stendur til 1. júní 2022. Á þeim tíma eru í boði helgarleigur í orlofshúsum á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og vikuleigur í orlofsíbúðum félagsins á Höfuðborgarsvæðinu. 

Athugið að hægt verður að bóka hús á Einarstöðum út september á orlofsvefnum en frá 1. október sér staðarhaldari um útleiguna. Síminn hjá honum er 861 8310. 

Helgarleiga er þrjár nætur, frá fimmtudegi til sunnudags, eða frá föstudegi til mánudags. 

Eins og áður segir er auðveldast að panta á orlofsvef félagsins, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins á hefðbundnum opnunartíma og panta hús eða bústað.