Vetrarleiga orlofshúsa

Vert er að minna félagsmenn á að þeim stendur til boða sex góðir valkostir í orlofsmálum í vetur. Hér er um að ræða dvöl í orlofshúsum á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og orlofsíbúðir félagsins á Höfuðborgarsvæðinu og á Egilsstöðum.

Vetrarleigan stendur yfir frá 1. september til 1. júní ár hvert. Allur veturinn er undir og ekki þarf lengur að sækja sérstaklega um jól og páska. Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

Auðveldast er að panta á Félagavefnum, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins og panta hús eða bústað.

Sjá nánar hér